Skólinn
Vikupistill skólameistara (2010/4)
Fundir í vikunni
Umsjónarfundur verđur haldinn miđvikudaginn 3. febrúar kl. 10.15.
Skólaráđsfundurverđur haldinn miđvikudaginn 3. febrúar kl. 11.10.
Samstarfsnefndarfundur verđur haldinn fimmtudaginn 4. febrúar kl. 9.05.
Skólafundur 5. febrúar
Föstudaginn 5. febrúar fellur kennsla niđur eftir kl. 10.00 en ţá hefst skólafundur um menntastefnu FÁ og nýjar námskrár.
Fundarstjóri: Ólafur H. Sigurjónsson
Fundartími: 10.15 – 15.00
kl 10.15-11.15 (10 mín kynningarerindi)
- Menntastefna skólans (Gísli Ragnarsson)
- Almenn námsbraut (Eiríkur Brynjólfsson)
- Sérnámsbrautir (Halldór G. Bjarnason)
- Heilbrigđisbrautir (kennslustjórar heilbrigđisbrauta)
- Stúdentsbrautir (kennslustjórar bóknámsbrauta)
kl. 11.20-12.20 og kl. 12.50-13.50
Allir hóparnir fjalla um menntastefnu skólans auk námskráa sinna brauta.
1. Hópur: Almenn námsbraut (EB)
2. Hópur: Sérnámsbrautir (HGB)
3. Hópur: Heilbrigđisbrautir (GHR)
4. Hópur: Stúdentsbrautir (HÓ)
kl. 14.00-15.00
Hópstjórar gera grein fyrir niđurstöđum hópsins.
Eftirfarandi drög ađ menntastefnu skólans eru lögđ fram til umrćđu í hópunum:
Menntastefna skólans – drög til skođunar
Fjölbrautaskólinn viđ Ármúla er opinber framhaldsskóli sem hefur starfađ í ţrjá áratugi. Í skólanum hafa skapast ýmsar hefđir sem ástćđa er til ađ halda í heiđri, til dćmis ađ ţví er varđar vinsamleg og ánćgjuleg samskipti nemenda og kennara. Ţađ má m.a. rekja til ţess ađ frá upphafi hefur nemendahópurinn komiđ víđs vegar ađ, veriđ á ýmsum aldri og búiđ yfir margbreytilegri reynslu. Ţessari sérstöđu vill skólinn halda. Ţađ er stefna skólans ađ beita heimilislegum aga sem byggist á gagnkvćmri virđingu starfsfólks og nemenda og stuđlar ađ heilbrigđum metnađi. Skólinn leitast viđ ađ skapa mannúđlegt og örvandi umhverfi fyrir nemendur og starfsfólk. Í skólanum á ađ vera fjölbreytilegt frambođ á námsefni og kappkostađ ađ gera ţađ ađlađandi og ađgengilegt fyrir nemendur međ margvíslegum kennsluađferđum um leiđ og gerđar eru tilhlýđilegar kröfur.
Skólinn telur mikilvćgt ađ á hverjum tíma sé fylgst međ nýjungum í kennslu og menntamálum og ađ menn séu óhrćddir viđ ađ taka upp ţćr nýjungar sem horfa til framfara. Starfsmenn leggja metnađ sinn í ađ námsframbođ sé á hverjum tíma í samrćmi viđ kröfur samfélagsins. Námsframbođ ţarf ţví ađ vera fjölbreytt til ţess ađ hver nemandi eigi raunverulega valkosti og notfćri sér ţá í samrćmi viđ áhugamál sín og hćfileika.
Nemendur eru hvattir til ađ tileinka sér góđar námsvenjur og sjálfsaga. Međ ţví móti öđlast ţeir sjálfstraust til ţess ađ takast á viđ ný viđfangsefni hverju sinni og ţeir bera ábyrgđ á eigin námi. Skólinn leggur metnađ sinn í ađ styđja vel viđ nemendur svo ađ ţeir geti boriđ ábyrgđ á eigin lífi, námi og starfi.
Skólinn mun áfram leitast viđ ađ sinna fjölskrúđugum hópi nemenda í samrćmi viđ námskrá hverju sinni. En samskipti nemenda eru líka mikilvćg og ţeir lćra hver af öđrum. Skólinn vill stuđla ađ slíkum kynnum, m.a. međ ţví ađ styđja viđ heilbrigt félagslíf.
Skóli er samfélag manna. Ţađ er eitt ađalsmerki menntunar ađ menn njóta sín betur í lífi og starfi en ella. En jafnframt stuđlar menntun ađ ţví ađ fólk nýtur betur ţeirra verđmćta sem umhverfiđ býđur upp á. Skólinn vill stuđla ađ ţví ađ nemendur verđi betur skyggnir á líf og listir í samfélagi sínu ađ námi loknu.
Í starfi sínu mun skólinn leitast viđ ađ búa nemendur undir líf og starf í lýđrćđisţjóđfélagi, efla lćsi ţeirra í víđasta skilningi ţess orđs, lýđrćđisvitund, jafnréttishugsjón, menntun til sjálfbćrni og sköpunaranda.
Skólinn býđur upp á nám á almennri námsbraut, námsbrautum til stúdentsprófs, sérnámsbrautum og heilbrigđisbrautum, auk ţess sem skólinn rekur öflugt fjarnám.
Almenn námsbraut
Almenn námsbraut Fjölbrautaskólans viđ Ármúla er fyrir ţrjá hópa nemenda. Í fyrsta lagi fyrir ţá sem ekki hafa ákveđiđ á hvađa námsbraut ţeir vilja skrá sig. Í öđru lagi fyrir nemendur sem ekki fullnćgja inntökuskilyrđum sem krafist er á ađrar brautir skólans. Í ţriđja lagi eru á almennri námsbraut nemendur međ annađ móđurmál en íslensku og ónógan undirbúning til ađ innritast á ađrar brautir. Nemendum á almennri námsbraut stendur til bođa sérstakt nám í upprifjunaráföngum og stuđningur viđ annađ nám. Markmiđiđ er ţeir geti fćrt sig yfir á ađrar brautir skólans eđa lokiđ námi međ framhaldsskólaprófi.
Sérnámsbrautir
Námiđ á sérnámsbraut er einkum ćtlađ nemendum sem hafa notiđ verulegrar sérkennslu í grunnskóla og veriđ í sérdeild eđa sérskóla. Nemendur eiga kost á allt ađ fjögurra ára framhaldsnámi viđ FÁ ađ loknu grunnskólanámi. Nemendur útskrifast međ sama einingafjölda og nemendur af stúdentsbrautum skólans en námiđ sem liggur ađ baki hverri einingu hefur ólíkar áherslur.
Heilbrigđisbrautir
Skólinn er kjarnaskóli í heilbrigđisgreinum og býđur upp á nám á heilbrigđisritarabraut, heilsunudddarabraut, lyfjatćknabraut, lćknaritarabraut, sjúkraliđabraut og tanntćknabraut. Einnig er stefnt ađ fagháskólanámi fyrir útskrifađa lyfjatćkna og sjúkraliđa. Nemendur sem hefja nám á bóknámsbrautum skólans geta fćrt sig yfir á heilbrigđisbrautir og öfugt. Heilbrigđisbrautir skólans eru í stöđugri ţróun og ţess gćtt ađ námiđ sé ávallt í takt viđ ţađ starf sem býđur nemenda ađ námi loknu.
Stúdentsbrautir
Skólinn býđur upp á hefđbundiđ nám til stúdentsprófs á félagsfrćđabraut, málabraut, náttúrufrćđibraut og viđskipta-og hagfrćđibraut. Ţetta nám er undirbúningur undir háskólanám í tilteknum greinum en auk ţess hefur skólinn jafnan litiđ svo á ađ stúdentsprófiđ ćtti ađ vera sem hagnýtast ţeim sem ekki stefndu á hefđbundiđ háskólanám en hefđu hug á annars konar námi eđa ţátttöku í atvinnulífinu, strax ađ stúdentsprófi loknu.
Fjarnám
Fjarnám hófst í FÁ haustiđ 2002 og hefur ţví sífellt vaxiđ fiskur um hrygg. Síđustu tvö árin hafa nemendur í fjarnámi veriđ tvöfalt fleiri en nemendur dagskólans. Fjarkennsla er ţví orđin veigamikill ţáttur í allri kennslu í skólanum. Stöđugt hefur veriđ unniđ ađ ţví ađ bćta fjarkennsluna međ ţví ađ nýta alla ţá möguleika sem upplýsingatćknin býđur upp á.
Áfangakerfiđ - námsval
Allt nám í skólanum er eftir áfangakerfi. Áfangakerfiđ gerir nemendum kleift ađ hafa áhrif á námshrađa sinn, sumum hentar venjulegur námshrađi, ađrir geta fariđ hrađar og enn öđrum er hćgt ađ bjóđa lengri kennslutíma í hćgferđum og nýta nemendur sér í samráđi viđ námsráđgjafa alla ţessa kosti skólans. Áfangakerfi skólans gerir ţeim nemendum sem ekki hafa markađ sér ákveđna stefnu strax ađ grunnskóla loknum mögulegt ađ stunda nám í almennum greinum og ljúka námi međ útskrift af almennri braut skólans. Ţetta almenna nám nýtist fari nemendur í ađra skóla og nýtist sömuleiđis ef nemendur halda áfram námi í FÁ.
Umhverfi skólans
Skólinn er viđ Ármúla 12 og er vel stađsettur međ tilliti til strćtisvagnaţjónustu og annarrar ţjónustu í tengslum viđ skólann. Skólinn er međ leiguhúsnćđi í Ármúla 10 og Ármúla 17 auk ţess sem íţróttakennsla er í Framheimilinu í Safamýri. Áriđ 2008 var hafist handa viđ ađ byggja 3000 m2 nýbyggingu viđ skólann sem áćtlađ er ađ verđi tilbúin áriđ 2011. Ţá rúmast allt skólastarfiđ undir einu ţaki. FÁ er grćnfánaskóli og leggur ríka áherslu á umhverfismál.
Starfsliđ
Starfsliđ skólans er vel menntađ, stór kjarni hefur starfađ saman um og yfir 20 ár, breytingar á mannahaldi eru eđlilega nokkrar en mestar í tengslum viđ nýjungar í skólastarfi. Skólinn leggur áherslu á ađ búa starfsmönnum sínum eins góđ starfsskilyrđi og kjör og mögulegt er.
Gísli

