STÆR2AM05 - Algebra, föl og mengi

Fyrsti stærðfræðiáfangi á Náttúrufræðibraut og Viðskipta-og Hagfræðibraut.

Efnisatriði: Algebra, jöfnur, veldi og rætur, bein lína í hnitakerfi, ójöfnur, algildi, annars stigs jöfnur, fleygbogar, hornaföll, fallafræði, margliður og mengi.

Kennslugögn: Stærðfræði 2B eftir Gísla Bachmann og Helgu Björnsdóttur útgefin í Reykjavík 2023. Aukaefni frá kennara um hnitakerfi, föll, algildi og mengi.

Námsmat: Lokapróf með lágmarkseinkunn 4,5
Einkunnir fyrir gagnvirkar æfingar eru ekki reiknaðar inn í lokaeinkunn nema nemandinn hafi staðist lokapróf og gilda þá einungis til hækkunar á lokaeinkunn. Gagnvirkar æfingar gilda þá 30% og lokaprófið 70%
Að öðrum kosti gildir lokaprófið 100%