Um fjarnám

Í fjarnámi FÁ getur þú tekið staka áfanga, hvort sem er til stúdentsprófs og til hagnýts starfsnáms á heilbrigðissviði.

Haltu áfram að læra svo lengi sem þú lifir!

Haustönnin hefst 2. september. Þann dag fá nemendur send aðgangsorð að kennslukerfi Moodle. Athugið: kennsla í fjarnámi FÁ fer fram í gegnum Moodle en ekki í gegnum INNU. Lokaprófin eru staðbundin og tekin á blaði.

Hér má sjá hvaða áfangar eru kenndir á mismunandi önnum. Settu "haust" inn í leitarstikuna "í boði" til að skoða þá áfanga sem eru í boði á haustönninni.

Í fjarnámi skólans er stuðst við kennsluumhverf Moodle. Moodle er lokað kerfi. Allir nemendur fá aðgang að þeim áföngum sem þeir eru skráðir í. Þar geta nemendur nálgast námsáætlanir, námsefni, verkefni og próf áfanga. Þeir hafa aðgang að kennara sínum í samskiptakerfi Moodle. Nám í fjarnámi FÁ er sjálfsnám undir handleiðslu kennara. Nemandi þarf að ná 4,5 á lokapófi til að ná áfanga. Athugaðu að lokapróf eru ekki á rafrænu formi.

Nemendur í fjarnámi og dagskóla geta fengið Microsoft Office pakkann hjá skólanum. Aðgangurinn er virkur þann tíma sem þeir eru skráðir í skólann. Nánari upplýsingar hér

Náms- og starfsráðgjöf:

Nemendur fjarnámsins hafa aðgang að námsráðgjafa fjarnámsins innan skólans. Hægt er að senda tölvupóst á radgjof@fa.is með fyrirspurnir og vangaveltur um náms- og starfsferilinn. Einnig er hægt að óska eftir viðtali og er val um hvort það sé símaviðtal, viðtal á staðnum eða í gegnum Teams.

Á haustönn 2024 er boðið upp á eftirfarandi örfyrirlestrar á netinu fyrir nemendur í fjarnáminu:

4. september kl. 11.30 – 12.00 Skipulag og tímastjórnun í námi
2. október kl. 11.30 – 12.00 Glósur og minni
6. nóvember kl. 11.30 – 12.00 Prófaundirbúningur og próftaka
11. desember kl. 11.30 – 12.00 Val á áföngum og námsbraut

Fyrirlestrarnir verða á teams og hægt að skrá sig hér

Mat á fyrra námi: Fjarnámsnemandi sem stefnir á að stunda nám á stúdentsbrautum eða heilbrigðisbrautum skólans getur lagt inn beiðni um mat á fyrra námi/mat á námi úr öðrum skólum, sjá hér. Mat á námsferli kostar kr. 10.000.-

Einnig er hægt að óska eftir ráðgjöf um val á áföngum í fjarnámi FÁ, sjá hér. Ráðgjöfin miðast eingöngu við nám á brautum FÁ og er án endurgjalds.

Ef þú stundar nám í öðrum skóla og ætlar að taka áfanga í fjarnámi FÁ samhliða þarftu að fá staðfestingu frá þínum skóla um að þeir meti fjarnámsáfangann inn á braut skólans. Ef þú ert ekki í öðru námi, langar að prófa fjarnám en ert ekki viss um hvað skal velja er þér velkomið að leggja inn beiðni um ráðgjöf, sjá hér.

Aðstaða til náms: Nemendur fjarnámsins hafa aðgang að Setrinu sem er staðsett á jarðhæð skólans. Setrið býður upp á aðstöðu til náms og á ákveðnum tímum hefur nemandi aðgang að kennara í Setrinu á haust og vorönn, sjá upplýsingar hér.

Ertu með lesblindu/dyslexiu? eða annan sértækan námsvanda? Í lokaprófi getur þú óskað eftir því að fá að hlusta á spurningar prófsins og/eða skrá svör í tölvu (fjarnam@fa.is). Þú þarft ekki að sækja um lengri tími í lokaprófi, hann er lengdur. Hljóðbókasafn Íslands veitir nemendum með lesblindu/dyslexiu þjónustu, sjá Hér.

 

NÁMSBRAUTIR í FÁ:

Stúdentsbrautir:

Starfsnámsbrautir: