Þjónusta fyrir AM nemendur

Deildarstjóri AM nemenda hefur umsjón með nemendum sem eiga annað móðurmál en íslensku. Hann veitir erlendum nemendum ráðgjöf og er í samskiptum við forráðamenn.

Deildarstjóri AM nemenda er Sigrún Eiríksdóttir.  

Sigrún Eiríksdóttir

Netfang: sigrune@fa.is

Sigrún er staðsett í N205.

Markmið

Allir nemendur FÁ eiga að fá sömu tækifæri til menntunar, óháð uppruna og þjóðerni. Hvers kyns fordómar og mismunun er aldrei liðin. Í FÁ er mjög fjölbreyttur nemendahópur og þ.á.m. margir nemendur af erlendum uppruna. Stefna skólans er að móta jákvæð viðhorf til fjölmenningar, jafnt meðal kennara sem nemenda, svo hver og einn nemandi fá notið sín á sínum forsendum. Nemendur skólans eiga að fá að njóta þeirrar fjölbreytni og tækifæra til menntunar sem felast í samveru og samskiptum við fólk af ólíkum uppruna og þjóðerni.

Leiðir

Ráðgjöf og aðstoð við heimanám. Sérstakir íslenskuáfangar (ÍSAN og ÍSTA) og grunnáfangar í ensku (ENSK1BY05 og ENSK1BF05). Til viðbótar má nefna nýja áfanga sem eru hannaðir fyrir nemendur með litla íslenskunnáttu, t.d. í lífsleikni, raungreinum, sögu, umhverfisfræði, félagsfræði og upplýsingatækni.