Þjónustutæknabrú

Þjónustutæknar – brúarnám – ÞT22

 

Þjónustutækna-brú er ætluð fullorðnu fólki sem óskar eftir að fá metna starfsreynslu og óformlegt nám til styttingar náms á þjónustutæknabraut. Skilyrði til innritunar í nám á þjónustutæknabrú eru að umsækjandi sé orðinn 20 ára og framvísi staðfestingu frá vinnuveitanda um að hann hafi a.m.k. 2 ára starfsreynslu og starfi enn við þau störf sem falla undir þjónustutæknastörf. Auk þess þarf viðkomandi að hafa lokið starfstengdum námskeiðum á vegum stéttarfélaga eða stofnana/fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu sem hafa það að markmiði að auka kunnáttu og færni í starfi.

Skólameistari ber ábyrgð á mati á fyrra námi í samræmi við ákvæði í aðalnámskrá framhaldsskóla, almennum hluta. Mælt er með þeirri viðmiðun að námskeið og starfsreynsla í starfi þjónustutækna virki á þann hátt að nemendur fái fyrst og fremst metna áfanga sem eru merktir með stjörnu (*) í yfirlitinu hér fyrir neðan. Enn fremur er gert ráð fyrir að starfsreynsla sem fellur vel að markmiðum brautarinnar verði metin sem ígildi vinnustaðanáms að hluta, allt að 25 - 30 einingum eftir atvikum.

Sá sem lokið hefur þjónustutæknanámi af brú með fullnægjandi árangri hefur lokið fullgildu námi þjónustutækna enda þótt viðkomandi hafi ekki lokið almennum greinum brautarinnar samkvæmt aðalnámskrá. Sá hinn sami kann hins vegar að þurfa að ljúka því námi til að geta stundað framhalds- eða viðbótarnám að loknu námi af brúarleið.

Heilbrigðis- og sérgreinar 49 ein

Gæði, öryggi og rekjanleikiGÆÖR2RE055 ein

Heilbrigðisfræði*HBFR1HH055 einLíkamsbeitingLÍBE1HB011 ein

Samskipti*SASK2SS055 ein

Sálfræði*SÁLF1SD055 ein

SiðfræðiSIÐF2SF055 ein

SkyndihjálpSKYN2EÁ011 ein

SýklafræðiSÝKL2SS055 ein

Starfsumhverfi heilbrigðisstofnana 5 ein

UmhverfisfræðiUMHV1SJ055 ein

Vinnan og vinnumarkaðurinn*VIMA1RS011 ein

Þjónustutæknir, kynning*ÞTÆK1KY011 ein

Þjónustutæknir, starfÞTÆK3ÞF055 ein

Vinnustaðanám: 40 einVinnustaðanám (ferilb. 24 vikur)*að hluta40 ein