Fyrirkomulag prófa og prófstaðir
Lokapróf haustannar verða haldin 25. nóvember - 9.desember.
Dagsetningar prófa eru fastar skv. próftöflu. Ekki er veitt undanþága frá settum prófdögum.
Lokapróf fjarnámsins eru haldin í Fjölbrautaskólanum við Ármúla, Ármúla 12. Nemendur sem taka lokapróf í heimabyggð hérlendis og erlendis þurfa að tilkynna það sérstaklega á skrifstofu fjarnáms fyrir 15.nóvember, á netfang: fjarnam@fa.is. Þeir sem taka lokapróf í erlendis þurfa a tryggja próftökuna sem fyrst (sjá neðar).Nemendur sem taka lokapróf utan FÁ þurfa almennt að greiða fyrir próftöku. Upphæð gjaldsins er mismunandi eftir prófstöðum. Í lokaprófi þarf að framvísa gildu skilríki. t.d. ökuskírteini, vegabréfi eða nafnskírteini.
Árekstar í próftöflu: Ef tvö eða fleiri lokapróf stangast á á sama prófdegi má færa próf á sjúkraprófsdag án endurgjalds.
Sjúkrapróf: það þarf að tilkynna veikindi/forföll fyrir prófdag eða í síðasta lagi á prófdegi með því að senda tölvupóst á forfoll.fjarnam@fa.is. Það þarf ekki að framvísa læknisvottorði en nemendur þurfa að greiða kr. 2.000 fyrir sjúkrapróf inn á reikning nr. 514-26-351 (kt.590182-0959). Þeir sem taka próf erlendis eða úti á landi verða að tilkynna veikindi/forföll bæði á skrifstofu fjarnáms (forfoll.fjarnam@fa.is) en einnig á prófstað (það er mjög mikilvægt að tilkynna forföll á prófstað því ef það gleymist getur nemandi þurft að greiða tvöfalt yfirsetu/þjónustugjald).
Próftaka utan FÁ:
- Í heimabyggði hérlendis, t.d. í öðrum framhaldsskólum/símenntunar-, fræðslustöðvum víðs vegar um landið (fyrir utan stór-höfuðborgarsvæðið). Sjá upptalningu hér fyrir neðan.
- í heimabyggð erlendis, t.d. í sendiráði, ræðismannaskrifstofu eða viðurkenndum menntastofnunum nálægt dvalarstað nemenda erlendis.
- Ef nemandi ætlar að taka próf erlendis þarf hann sjálfur að útvega próftökustað og ábyrgðarmann og tilkynna ráðstöfunina til okkar fyrir 15.nóvember.
- Nemandi skal tilkynna prófstað og ábyrgðarmann í lokaprófi með því að senda tölvupóst á skrifstofu fjarnáms ( fjarnam@fa.is ).
- Í póstinum skal tilgreina:
- nafn ábyrgðarmanns, stöðu viðkomandi í stofnunninni og netfang
1. Framhaldsskólar/símenntunar-, fræðslustöðvar sem þjónusta fjarnámsnemendur FÁ:
- Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra, Sauðárkrók, FNV
- Fjölbrautaskóli Snæfellinga, Grundarfirði, FSN
- Fjölbrautaskóli Suðurnesja, Keflavík, FSS
- Fjölbrautaskóli Vesturlands Akranesi, FVA
- Framhaldsskólinn í Austur- Skaftafellssýslu, FAS
- Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum, FIV
- Menntaskóli Borgafjarðar, Borgarnesi, MB
- Menntaskólinn á Egilsstöðum, ME
- Menntaskólinn á Ísafirði, MÍ
- Menntaskólinn á Laugarvatni, ML
- Menntaskólinn á Tröllaskaga, MTR
- Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum, MSS
- Verkmenntaskóli Austurlands, Neskaupstað, VA
- Verkmenntaskólinn á Akureyri, VMA
- Háskólafélag Suðurlands, Selfossi, HFSU
- Austurbrú á Djúpavogi, Borgarfirði eystri, Reyðarfirði, Seyðisfirði og Vopnafirði
- Þekkingarnet Þingeyinga á Húsavík, Laugum í Reykjadal, Raufarhöfn, Þórshöfn og víðar.
- Námsstofur á Blöndósi, Hvammstanga og Skagaströnd
- Símey á Akureyri og Dalvík
- Viska í Vestmannaeyjum.
Aðstoð vegna lesblindu/sérúrræði við próftöku:
- Sérúrræði fyrir nemendur með lesblindu eða annann skynúrvinnsluvanda: hægt er að sækja um að fá að hlusta á próf, taka próf á tölvu, fá prófin með stækkuðu letri og/eða lituðum prófblöðum fyrir 15. nóvember, sjá hér.
- Ertu með prófkvíða? Hér eru Góð ráð við prófkvíða