Leiðbeiningar um notkun Innu

Skólinn notar nemenda umsjónarkerfið INNU til að halda utan um einkunnir, bókalista, viðveru, tilkynningar til nemenda og fleira. Hér fyrir neðan eru stutt myndbönd sem gott er að horfa á til að sjá möguleikana.

Myndband 1 - stundatafla, viðvera og fleira

Myndband 2 - einkunnir, námsferill og fleira

Val í INNU fyrir næstu önn

Með vali staðfestir þú umsókn þína um skólavist á næstu önn. Ef þú gengur ekki frá vali er litið svo á að þú ætlir ekki að þiggja skólavist á næstu önn og þú færð hvorki greiðsluseðil né stundatöflu. Umsjónarkennarinn þinn aðstoðar þig við valið ef þú þarft.

Hér er myndband með leiðbeiningum um hvernig velja skal í Innu.

 

Hvað á að velja?

  1. Til að komast í Innu þarftu rafræn skilríki.
  2. Þegar í Innu er komið, ferðu inn á „Námið“ efst til hægri og velur þar „Námsferill – braut“. Þá sérðu brautarkröfuna og hvaða áföngum þú hefur lokið.
  3. Hluti bóknámsbrauta er frjálst val. Á heimasíðu skólans er listi yfir alla áfanga skólans og innihald þeirra.
  4. Ef þú ert á bóknámsbraut þarftu að hafa í huga að af heildarfjölda eininga, sem er 200, mega einingar á 1. þrepi ekki fara upp fyrir 66 og einingar á 3. þrepi ekki vera færri 40.
  5. Í aðalval skaltu velja að hámarki 7 áfanga auk íþrótta. Í varaval skaltu velja 2-3 áfanga. Mikilvægt er að hafa áfanga í varvali því það er notað ef áfangi /áfangar í aðalvali komast ekki í töflu, eða eru felldir niður.

Hvernig á að velja?

  1. Smelltu á VAL (í efsta dálki lengst til hægri).
  2. Veldu önn.
  3. Veldu áfanga úr lista með því að smella á hann.
  4. Skipt er á milli aðalvals og varavals með því að draga á milli kassa.
  5. Til að fá nánari upplýsingar um valinn áfanga, er bendli rennt yfir hann.
  6. Til að eyða áfanga er smellt á x.
  7. Þegar allir áfangar hafa verið valdir, skaltu smella á „Vista val“.

Gangi þér vel!