Mötuneyti

Mötuneyti er rekið fyrir nemendur og starfsfólk skólans þar sem leitast er við að hafa hollan, góðan og fjölbreyttan mat í boði.

Á morgnana er boðið upp á hafragraut og í hádeginu er í boði heitur matur og er ávallt hægt að velja grænmetis/vegan rétt.  Einnig er hægt að kaupa samlokur, salöt, drykki og fleira

Matseðill vikunnar er auglýstur í upphafi viku.

Heitur matur er framreiddur alla daga frá kl. 11:40 – 13:10.

Stök máltíð kostar 1400.- kr.
Klippikort (10 máltíðir) 13500.- kr.

Opnunartími mötuneytisins er 08:00-14:00 alla virka daga.