Sjúkraliðabrú

Tilgangur náms á sjúkraliðabrú er að gefa ófaglærðu fólki með langa starfsreynslu í umönnunarstörfum tækifæri til þess að öðlast starfsréttindi sjúkraliða. Námið var sett á stofn í samvinnu Menntamálaráðuneytis, fjölbrautaskóla sem mennta sjúkraliða og Sjúkraliðafélags Íslands.

Inntökuskilyrði 

  • Að umsækjandi hafi náð 23 ára aldri og hafi að lágmarki 5 ára starfsreynslu við umönnun aldraðra, sjúkra eða fatlaðra, séu starfandi við slíka umönnun og hafi meðmæli frá vinnuveitenda sínum.
  • Auk þess þurfa umsækjendur að hafa lokið starfstengdum námskeiðum á vegum stéttarfélaga, sveitarfélaga eða annarra aðila að lágmarki 230-260 stundir.
  • Umsækjendur, sem lokið hafa vissum áföngum í framhaldsskóla, geta fengið þá metna sem ígildi námskeiða.
  • Þeir sem uppfylla eftirtalin skilyrði skulu að lágmarki ljúka 146 feininga sérgreinanámi sjúkraliðabrautar.

Smelltu á viðkomandi krækju hér fyrir neðan til að opna brautarlýsingu.

Sjúkraliðabrú