Tölvu- og þjónustuver

Í tölvu- og þjónustuveri er hægt að fá upplýsingar um aðgang að nettengingu við skólann, prentun, skönnun og almenna tölvuþjónustu.

Í valstikunni hér til hægri eru ýmsar leiðbeiningar varðandi tölvumál skólans.

Þjónustuverið er staðsett á fyrstu hæð við hliðina á nemendaráðinu.

Tölvu- og þjónustuverið er opið frá kl. 8:00 - 16:00 mánudaga til fimmtudaga og föstudaga kl. 8:00 - 14:00.

Netfang Þjónustuversins er: thjonustuver@fa.is

Nemendur geta nýtt sér aðstöðuna í tölvustofum skólans þegar kennsla er ekki í gangi.

Starfsmenn tölvu- og þjónustuvers eru Árni Þór Ómarsson kerfisstjóri og Hólmfríður Ólafsdóttir netstjóri.