Tölvuverið er opið frá kl. 8:00 til 16:30 mánudaga - fimmtudaga og frá kl. 8:00 til 15:00 á föstudögum
Nemendur fá úthlutað notendanafni og lykilorði þegar þeir hefja nám við skólann. Notendanafnið er samsett á eftirfarandi hátt: fa + fyrstu 8 stafir kennitölunnar + @fa.is. Dæmi: fa01013077@fa.is
Nemendur geta breytt lykilorðinu sínu með því að fara á slóðina Leiðbeiningar er að finna á heimasíðu skólans undir Þjónusta – Tölvu- og þjónustuver – Menntaský – Breyta lykilorði.
Notendanafnið er jafnframt skólanetfang nemenda sem gefur nemendum aðgang að staðarneti skólans auk ýmiss hugbúnaðar sem notaður er í námi.
Nemendur dagskóla og fjarnáms geta fengið Microsoft Office 365/Office 2019 hjá skólanum og notað þann tíma sem þeir eru skráðir í skólann. Leiðbeiningar er að finna á heimasíðu skólans undir Þjónusta – Tölvu- og þjónustuver – Office 365/Office 2019.
Nemendur geta tengt fartölvu, síma, spjaldtölvu inn á þráðlausa net skólans. Upplýsingar er að finna inn á heimasíðu skólans undir Tölvu- og þjónustuver – Tenging við net.
Fjölnotavél (prentari) sameinar prentun, ljósritun og skönnun. Nánari upplýsingar um prentun er að finna á heimasíðu skólans undir Þjónusta – Tölvu- og þjónustuver – Prentun – skönnun. Sömuleiðis geta nemendur prentað úr eigin fartölvum. Leiðbeiningar er að finna á heimasíðu skólans undir Þjónusta – Tölvu- og þjónustuver – Prentun úr fartölvum.
Á stofutöflum kemur fram hvenær verið er að kenna í tölvustofunum. Nemendur hafa aðgang að tölvustofum þegar ekki er verið að kenna í stofunum.
Munið að ganga ávallt vel um tölvuverið. Mat og drykki má ekki hafa meðferðis. Skráið ykkur út af tölvunum að vinnu lokinni.
Láttu ekki undir nokkrum kringumstæðum aðra fá notendanafnið þitt og lykilorð. Gleymdu því ekki að þú berð ábyrgð á netfanginu þínu og öllu því sem unnið er á þínu netfangi.
Brot á umgengnisreglum getur leitt til þess að aðgangur að neti skólans verði tímabundið eða alveg lokað. Litið er á tilraun til að brjótast inn á netkerfi skólans eins og hvert annað innbrot og getur leitt til brottvísunar úr skóla.