- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Skrifstofa
- Stoðþjónusta
- Þjónusta við nemendur
- Heilbrigðisskólinn
- Fjarnám
- Inna
- Moodle
- Teams
- Office 365
Lyfjatækni er 200 eininga nám með námslok á 3.hæfniþrepi og skiptist í almennar greinar, heilbrigðis- og raungreinar og nám í sérgeinum lyfjatæknabrautar. Nám í sérgreinum lyfjatæknabrautar er eingöngu í boði sem fjarnám með staðbundnum lotum í skóla auk starfsnáms í apótekum eða sjúkrahúsapótekum. Gert er ráð fyrir að námi í almennum greinum og heilbrigðisgreinum sé að mestu lokið áður en sérgreinar brautarinnar eru valdar. Tilgangur lyfjatæknináms er að búa nemendur undir fjölbreytt störf lyfjatækna. Sérstök áhersla er lögð á að þjálfa færni í að takast á við raunveruleg viðfangsefni þar sem fyrirmæli, verklýsing og vinnuaðferðir liggja fyrir. Við skipulag kennslu er mikilvægt að taka mið af þörfum starfsgreina og mælt er með samvinnu skóla og stofnana eins og kostur er.
Skilyrði til innritunar í nám á lyfjatæknabraut er að nemandi hafi lokið skyldunámi í samræmi við ákvæði aðalnámskrár grunnskóla og náð tilskildum lágmarksárangri skv. ákvæðum reglugerðar um innritun nemenda í framhaldsskóla.
Vinnustaðanám er skipulagt sem fjórtán vikna nám í apóteki/sjúkrahúsapóteki að loknu sérnámi í skóla, undir leiðsögn lyfjafræðings eða lyfjatæknis. Tilgangur vinnustaðanáms er að gera nemendur hæfari til að takast á við vinnu í apótekum/sjúkrahúsapótekum, færa um að axla ábyrgð og sýna sjálfstæði í starfi. Vinnustaðanám er skipulagt út frá lokamarkmiðum náms.
Nákvæm brautarlýsing er á Námskrá.is.
Hér má sjá skiptingu sérgreina á annir.
Kynning frá Landspítalanum: