Verklagsreglur fjarnámskennara:
- Kennari á að setja fram nákvæma kennsluáætlun sem inniheldur m.a. markmið áfangans og áætlaða yfirferð. Það er í höndum hvers kennara hversu nákvæm áætluð yfirferð er. Einnig skulu vera í kennsluáætlun útskýringar á vinnulagi/námstækni.
- Kennari á að hafa samband við nemendahópinn reglulega.
- Kennara ber að setja námsefni fram á aðgengilegan hátt og leitast við að útskýra það fyrir nemendum á eins skýran hátt og honum er unnt. Einnig skal hann vísa nemendum á hvar ítarefni er að finna.
- Kennari á að meta frammistöðu nemenda fyrir skilaverkefni með einkunnum og/eða skriflegum umsögnum sem fela í sér leiðréttingar, leiðbeiningar og útskýringar. Auk þess skal kennari hvetja og hrósa þegar það á við.
- Kennari á að svara fyrirspurnum nemenda innan tveggja virkra sólarhringa. Kennari skal hafa lengri tíma ef um yfirferð á verkefnum/ritgerðum er að ræða. Ef kennari metur ekki verkefni strax, skal hann gera nemendum ljóst hvenær þeir eiga von á námsmati.
Verklagsreglur fjarnámsnemenda:
- Nemanda ber að lesa kennslu- /námsáætlun ítarlega í upphafi.
- Nemanda ber að fara inn í kennsluumhverfi á netinu eins oft og kennarinn leggur til og helst ekki sjaldnar en vikulega.
- Nemandi á að virða þær reglur sem kennari setur varðandi verkefnaskil.
- Nemandi á að láta kennara vita ef hann getur ekki skilað verkefni á tilsettum skiladegi og biðja þá um frest.
- Nemandi á að láta kennara vita ef hann ætlar að hætta námi í áfanganum.
- Nemandi þarf að tilkynna til skrifstofu fjarnáms ef hann þarf að taka lokapróf utan FÁ, ef hann er með árekstur í próftöflu eða þarf að taka sjúkrapróf.