Opnað hefur verið fyrir val nemenda fyrir vorönn 2025 og mikilvægt er að nemendur klári að velja fyrir mánudaginn 4. nóvember.
Ef nemendur eru í einhverjum vafa hvaða áfanga þeir eiga að velja eru þeir hvattir til þess að hafa samband við umsjónarkennara sinn. Ef nemandi velur ekki fyrir 4. nóvember á hann á ættu að missa skólavist.
Hafa ber í huga að hámark eininga á 1.þrepi eru 66 og að lágmarki á 35-40 einingar á 3.þrepi á stúdentsbrautum. Miðað skal við að nemendur velji að hámarki 7 áfanga auk íþrótta og 2-3 áfanga í varavali en gott er að velja í samræmi við námsárangur síðustu anna.
Leiðbeiningar
1. Smellið á flipann hægra megin niðri á forsíðunni þar sem stendur „Val“.
2. Þegar inn á síðuna er komið birtist þessi mynd. Ýtið á „+Velja áfanga“.
3. Eftir að hafa ýtt á „+Velja áfanga“ birtist þessi listi en þetta eru þeir áfangar sem í boði eru á næstu önn. Til þess að velja áfanga þarf einungis að smella þann áfanga t.d. EÐLI2GR05 og draga hann yfir á vorönn 2025. Þegar valinu er lokið er það staðfest með því að ýta á „Staðfesta val“
Hér má sjá í hvaða röð kjarnaáfangar eru teknir:
Hér eru þeir íslenskuáfangar sem eru fyrir nemendur með annað móðurmál en íslensku:
Hvernig á að velja?
Skrá sig í inn í Innu.
Smelltu á VAL.
Veldu önn.
Veldu áfanga úr lista með því að smella á hann.
Skipt er á milli aðalvals og varavals með því að draga á milli kassa.
Til að fá nánari upplýsingar um valinn áfanga, er bendli rennt yfir hann.
Til að eyða áfanga er smellt á x.
Þegar allir áfangar hafa verið valdir, skaltu smella á „Vistaval“.
Hvað á að velja?
Til að komast í Innu þarftu rafræn skilríki.
Þegar í Innu er komið, ferðu inn á „Námið“ efst til hægri og velur þar „Námsferill – braut“. Þá sérðu brautarkröfuna og hvaða áföngum þú hefur lokið.
Ef þú ert á bóknámsbraut þarftu að hafa í huga að af heildarfjölda eininga, sem er 200, mega einingar á 1. þrepi ekki fara upp fyrir 66 og einingar á 3. þrepi ekki vera færri 40.
Í aðalval skaltu velja að hámarki 7 áfanga auk íþrótta. Í varaval skaltu velja 2-3 áfanga. Mikilvægt er að hafa áfanga í varvali því það er notað ef áfangi /áfangar í aðalvali komast ekki í töflu, eða eru felldir niður.
Umsjónarkennarinn þinn aðstoðar þig við valið ef þú þarft. Ef þú gengur ekki frá vali er litið svo á að þú ætlir ekki að þiggja skólavistá næstu önn og þú færð hvorki greiðsluseðil né stundatöflu.