Náms- og starfsráðgjafi Fjarnáms FÁ

Nemendur fjarnámsins hafa aðgang að námsráðgjafa fjarnámsins innan skólans.

Náms- og starfsráðgjafi fjarnáms er Hrönn Baldursdóttir.

Hægt er að senda tölvupóst á radgjof@fa.is með fyrirspurnir og vangaveltur um náms- og starfsferilinn. Einnig er hægt að óska eftir viðtali og er val um hvort það sé símaviðtal, viðtal á staðnum eða í gegnum Teams.

Á haustönn 2024 er boðið upp á eftirfarandi örfyrirlestrar á netinu fyrir nemendur í fjarnáminu. Fyrirlestrarnir verða á teams og hægt að skrá sig hér

4. september kl. 11.30 – 12.00 Skipulag og tímastjórnun í námi
2. október kl. 11.30 – 12.00 Glósur og minni
6. nóvember kl. 11.30 – 12.00 Prófaundirbúningur og próftaka
11. desember kl. 11.30 – 12.00 Val á áföngum og námsbraut

 

Námsráðgjafi býður einnig upp á námskeið og vinnusmiðjur fyrir mismunandi hópa:

Námskeið fyrir nemendur á lokaári: 3 skipti.

Efni: val á námi og starfi, námslán og styrkir, umsóknir um störf og skóla.

Áhugasöm sendi póst til hronn@fa.is

Námskeið fyrir 16 og 17 ára nemendur sem eru eingöngu í fjarnámi: 3 skipti.

Tímasetning valin síðar út frá þörfum hópsins. Áhugasöm sendi póst til hronn@fa.is

Vinnusmiðja fyrir nemendur í fjarnáminu sem eru óákveðin með val á braut og/eða námi eftir framhaldsskóla

Vinnusmiðja – staðsett í FÁ:

18.október kl. 13 – 14.30

Vinnusmiðja – rafræn:

1.nóvember kl. 13 – 14.30

Síðast uppfært: 27. september 2024