- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Skrifstofa
- Stoðþjónusta
- Þjónusta við nemendur
- Heilbrigðisskólinn
- Fjarnám
- Inna
- Moodle
- Teams
- Office 365
Heilbrigðisritarabrú er ætluð fullorðnu fólki sem óskar að fá metna starfsreynslu og óformlegt nám til styttingar á námi á heilbrigðisritarabraut. Skilyrði til innritunar á heilbrigðisritarabrú eru að umsækjandi sé orðinn 22 ára gamall og framvísi staðfestingu frá vinnuveitanda um að hann hafi a.m.k. 4 ára starfsreynslu og starfi enn við ritarastörf á heilbrigðissviði. Auk þess þarf viðkomandi að hafa lokið 160 stunda starfstengdum námskeiðum á vegum stéttarfélaga eða stofnana/fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu sem hafa það að markmiði að auka kunnáttu og færni til ritarastarfa á heilbrigðissviði. Sá sem lokið hefur heilbrigðisritaranámi af brú með fullnægjandi árangri hefur lokið fullgildu starfsnámi heilbrigðisritara enda þótt viðkomandi hafi ekki lokið almennum greinum brautarinnar samkvæmt aðalnámskrá. Sá hinn sami kann hins vegar að þurfa að ljúka því námi til að geta stundað framhalds- eða viðbótarnám að loknu námi af heilbrigðisritarabrú.
Áfangar sem brúarnemendur þurfa að taka eru 67 einingar:
Bókfærsla BÓKF1IB05 5 ein.
Fagenska fyrir heilbrigðisgr. ENSK2EH05 5 ein.
Enska ENSK3SA05 5 ein.
Gæðastjórnun GÆST2VE04 4 ein.
Gæði, öryggi og rekjanleiki GÆÖR2RE05 5 ein.
Heilbrigðisfræði HBFR1HH05 5 ein.
Líkamsbeiting LÍBE1HB01 1 ein.
Lyfjafræði LYFR2SF04 4 ein.
Sálfræði SÁLF1SD05,SÁLF2FÖ05 10 ein.
Siðfræði SIÐF1SF05 5 ein.
Skyndihjálp SKYN1EÁ01 1 ein.
Skjalastjórnun SKJA1SV02 2 ein.
Skráning og hlustun SKRÁ3HL05 5 ein.
Starfsumhverfi heilbrigðiss STHE1HÞ05 5 ein.
Upplýsingatækni heilbr. UPPÆ1SR05 5 ein.