- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Skrifstofa
- Stoðþjónusta
- Þjónusta við nemendur
- Heilbrigðisskólinn
- Fjarnám
- Inna
- Moodle
- Teams
- Office 365
Sótthreinsitæknabrú er ætluð fullorðnu fólki sem óskar að fá metna starfsreynslu og óformlegt nám til styttingar á námi á sótthreinsitæknabraut.
Skilyrði til innritunar í nám á sótthreinsitæknabrú eru að umsækjandi sé orðinn 22 ára gamall og framvísi staðfestingu frá vinnuveitanda um að hann hafi a.m.k. 4 ára starfsreynslu og starfi enn við sótthreinsun og dauðhreinsun á heilbrigðissviði. Auk þess þarf viðkomandi að hafa lokið starfstengdum námskeiðum á vegum stéttarfélaga eða stofnana/fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu sem hafa það að markmiði að auka kunnáttu og færni til sótthreinsunar og dauðhreinsunar á heilbrigðissviði.
Skólameistari ber ábyrgð á mati á fyrra námi í samræmi við ákvæði í aðalnámskrá framhaldsskóla, almennum hluta. Mælt er með þeirri viðmiðun að námskeið sem nema a.m.k. 160 stundum jafngildi 7 einingum og að nemendur fái þá fyrst og fremst metna áfanga sem eru merktir með stjörnu (*) í yfirlitinu hér fyrir neðan. Enn fremur er gert ráð fyrir að starfsreynsla sem fellur vel að markmiðum brautarinnar verði metin sem ígildi vinnustaðanáms. Sá sem lokið hefur sótthreinsitæknanámi af brú með fullnægjandi árangri hefur lokið fullgildu starfsnámi sótthreinsitækna enda þótt viðkomandi hafi ekki lokið almennum greinum brautarinnar samkvæmt aðalnámskrá. Sá hinn sami kann hins vegar að þurfa að ljúka því námi til að geta stundað framhalds- eða viðbótarnám að loknu námi af sótthreinsitæknabrú.
Almennar heilbrigðisgreinar:
Heilbrigðisfræði* HBFR1HH05 5 ein
Líkamsbeiting* LÍBE1HB01 1 ein
Samskipti* SASK2SS05 5 ein
Siðfræði* SIÐF1SF05 5 ein
Skyndihjálp* SKYN1EÁ01 1 ein
Sýklafræði SÝKL2SS05 5 ein
Starfsumhverfi heilbrigðisstofnana* STHE1HÞ05 5 ein
Upplýsingalæsi á heilbrsv. UPPÆ1SR05 5 ein
Sérgreinar brautar
Áhalda- og efnisfræði, sótthreinsitækna ÁHEF2PE05 5 ein
Áhöld sérhæfð, sótthreinsitækna ÁEFS2AB05 5 ein
Sótthreinsun fyrir sótthreinsitækna SÓTS2HR05 5 ein
Dauðhreinsun fyrir sótthreinsitækna DAUH2SÖ05 5 ein
Gæði, öryggi og rekjanleiki GÆÖR2RE05 5 ein
Umhverfisfræði UMHV2SJ05 5 ein
Vinnustaðanám
Verknám (ferilbækur, 15 vikur fullt starf)* VINS2NS25 25 ein