LORI3HH05 - Lokaritgerð

Undanfari : Bóklegt nám lyfjatækna, áfanginn skal tekinn á síðustu námsönn
Í boði : Haust, Vor
Flokkur : Fjarnám

Lýsing

Nemandi vinnur sjálfstætt verkefni sem hann velur sjálfur í samráði við kennara. Verkefnið, sem spannar heila önn, tengist lyfjatækni og tengir saman ólíkar greinar innan lyfjatæknabrautar. Nemandi aflar heimilda og upplýsinga eða gerir könnun sem tengist viðfangsefni og skilar lokaritgerð.

Í boði: eftir þörfum í samvinnu við skóla.

Kennslugögn: Fagbækur, tímarit og vefsíður sem tengjast lokaritgerðarvinnu.

Námsmat: Ritgerðin gildir 100%.