Skráning í fjarnám

Lokað hefur verið fyrir skráningar í fjarnám á vorönn 2025.

Vorönnin hófst 22.janúar. Þann dag fá nemendur send í SMS aðgangsorð að kennslukerfi Moodle og kennsla hefst. Fram að þeim tíma er ekki hægt að skrá sig inn í Moodle eða INNU. Hér má nálgast dagatal fjarnámsins.

Vinsamlegast athugið:

  • Mikilvægt er að upplýsingar um umsækjanda séu rétt skráðar í skráningarferlinu, sérstaklega gsm-símanúmer viðkomandi.
  • Við skráningu þarftu að vera með greiðslukort og þann farsíma sem er tengdur kortinu til að auðkenna/staðfesta greiðslu. Þegar þú hefur auðkennt greiðsluna þarftu að klára skráninguna með því að velja græna hnappinn "senda umsókn".
  • Ekki er hægt að sækja um nám á braut í fjarnáminu. Þegar þú skráir þig getur þú valið braut til að sjá alla áfanga sem eru í boði á brautinni. Ef þú velur "sjá alla áfanga óháð braut" færðu aðgang að öllum áföngum sem eru í boði á önninni
  • Þú þarft ekki að skila inn gögnum (fylgiskjöl) í skráningarferlinu þó boðið sé upp á það.

Hér getur þú skoðað hvaða áfangar eru í boði í fjarnáminu 

Hér getur þú skoðað verðskrá fjarnámsins. 

Að gefnu tilefni: Lokapróf í fjarnámi FÁ eru ekki rafræn í Moodle eða INNU. Þau eru tekin í húsnæði skólans í Ármúla 12. Nemandi þarf að ná lágmarkseinkunn 4,5 í lokaprófi til að standast áfanga. Nemendur í fjarnámi FÁ geta tekið lokapróf utan FÁ en athugið að nemendur sem búa á Stór-Reykjavíkursvæðinu taka lokapróf í húsnæði FÁ. Sjá upplýsingar hér.

 

Síðast uppfært: 31. janúar 2025