DANS1GR05 - Danska 0, grunnáfangi

Undanfari : Dönskueinkunn C á grunnskólaprófi
Í boði : Alltaf
Flokkur : Fjarnám

Lýsing

Áhersla er á að auka orðaforða og les- og hlustunarskilning nemenda, svo þeir verði færir um að skilja venjulegt talað og ritað mál almenns eðlis. Undirstöðuatriði danskrar málfræði eru rifjuð upp og málnotkun þjálfuð með skriflegum og munnlegum verkefnum.

Kennslugögn

Allt námsefni (vefslóðir, ýmsir textar og verkefni) er aðgengilegt á kennsluvefnum Moodle.

Námsmat: Lokapróf með lágmarkseinkunn 4.5

Lokapróf: 50% Verkefni og próf á önn: 50%