EFNA2GE05 - Efnafræði 2

Undanfari : EFNA2AM05
Í boði : Haust, Vor
Flokkur : Fjarnám

Lýsing

Áfanginn er annar áfangi í efnafræði á náttúrufræðibraut. Nemendur læra um eiginleika gastegunda og áhrif mismunandi þátta eins og hita, þrýstings og rúmmáls. Farið verður í orku í efnahvörfum þar sem nemendur kynnast hugtökum eins og myndunarorku og eðlisvarma og lögmáli Hess. Einnig læra nemendur um sjálfgengni efnahvarfa, hvarfhraða og jafnvægi og þá þætti sem hafa áhrif á jafnvægisstöðu efnahvarfa.

Kennslugögn: allt námsefni er á Moodle.

Námsmat: 60% verkefnavinna á önninni og 40% lokapróf.