ENSK3RI05 - Enska - skapandi skrif / Creative Writing

Undanfari : ENSK3SA05
Í boði : Alltaf
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Byggt er á hæfni nemenda sem hafa lokið 5 einingum á 3.þrepi í ensku. Í þessum áfanga er lögð áhersla á skrif þar sem gerðar eru auknar kröfur um sjálfstæð vinnubrögð nemandans. Hér er svigrúm til að nýta sérhæfingu og/eða áhugasvið nemenda. Sem dæmi má nefna fréttatengd skrif, ljóð, smásögur, ritgerðir um bækur og kvikmyndir, efni tengt ákveðnum námsgreinum o.fl. Gerðar eru miklar kröfur um færni í skriflegri tjáningu. Mæting og virkni vegur þungt í lokaeinkunn áfangans.