HJÚK1AG05 - Inngangur að hjúkrun

Undanfari : HBFR1HH05 og LÍOL2SS05
Í boði : Haust
Flokkur : Fjarnám

Lýsing

Er kenndur samhliða HJVG1VG05, sem er verklegur áfangi í kennslustofu. Fjarnámsnemendur þurfa að taka þann áfanga í dagskóla samhliða þessum í fjarnámi.

Grunnatriði hjúkrunar kennd, skráning og fagmennska. Umfjöllun um hreyfingu, sögu hjúkrunar, lög, siðareglur og umhyggju. Farið verður í hjúkrun skjólstæðinga með vandamál tengt hjarta, lungum, meltingu og þvagfærum ásamt líknandi hjúkrun.

Bókalisti og námsmat:

Hjúkrun – 1. þrep (Almenn hjúkrun) ritstjórn: Anne Sofie Steens og Lissi Hansen (2013). Ritstjóri íslensku útgáfunnar Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir (2016).

6 verkefni 40%. Lokapróf 60%.