HJÚK2HM05 - Hjúkrun fullorðinna 1

Undanfari : HJVG1VG05 og HJÚK1AG05, einnig er mikilvægt að LÍOL2SSO5 sé lokið
Í boði : Vor
Flokkur : Fjarnám

Lýsing

Fjallað er um hjúkrunarferlið og faglega hjúkrunarskráningu. Hjúkrun sjúklinga með bráða- og langvinna sjúkdóma sem tengjast eftirtöldum kerfum: hjarta- og æðakerfi, öndunarkerfi, meltingarkerfi og þvagkerfi. Í áfanganum er lögð sérstök áhersla á tengingu fræðilegrar þekkingar við skipulagningu og framkvæmd hjúkrunar.

Bókalisti og námsmat:

Hjúkrun – 1. þrep (Almenn hjúkrun) ritstjórn: Anne Sofie Steens og Lissi Hansen (2013). Ritstjóri íslensku útgáfunnar Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir (2016).

5 verkefni 50% . Lokapróf 50%