ÍSLE2BS05 - Bókmenntir síðari alda

Undanfari : 5 feiningar í íslensku á 2. þrepi
Í boði : Alltaf
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Viðfangsefni áfangans er íslenskar bókmenntir frá siðaskiptum (1550) fram til aldamótanna 1900. Nemendur lesa bókmenntasögu tímabilsins auk valinna bókmenntatexta í sýnisbók. Lögð er sérstök áhersla á höfunda sem setja svip sinn á tímabilið. Að auki er ein söguleg skáldsaga sem tengist tímabilinu lesin.