KYNJ2KY05   - Kynjafræði

Í boði : Haust, Vor
Flokkur : Fjarnám

Lýsing

Í áfanganum er farið í menningarlegan og félagslegan mun sem einkennt hefur stöðu kynjanna og minnihlutahópa á ýmsum sviðum samfélagsins.

Markmið áfangans er að nemendur öðlist þekkingu og skilning á sögu jafnréttisbaráttunnar og nái tökum á helstu hugtökum kynjafræðinnar. Nemendur fá þjálfun í beitingu kynjagleraugna á hin margbreytilegu svið mannlífsins á skipulegan og gagnrýnin máta. Sjónum er beint að hinu persónulega og samfélagslega með sérstakri áherslu á greiningu fjölmiðla út frá hugmyndum kynjafræðinnar.

Námsgögn Kynjafræði fyrir byrjendur. Vefbók. Höf: Björk Þorgeirsdóttir og Þórður Kristinsson.

Ítarefni: Greinar, myndbönd, hljóðupptökur og kvikmyndir.

Námsmat Lotuverkefni 40% lokapróf 60%

 

Nánari upplýsingar á namskra.is