LÖGF2LÖ05 - Lögfræði

Í boði : Haust, Vor
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Nemandi - þekki til grunnatriða lögfræðinnar - þekki til grundvallaratriða í sambandi við löggjöf og aðrar réttarheimildir - þekki til meginatriða í íslenskri stjórnskipan - þekki meginreglur íslensks réttarfars og helstu farvegi mála í gegnum dómstóla og aðrar stofnanir réttarkerfisins, svo sem greiðslustöðvun, nauðasamninga og gjaldþrotaskipti - þekki helstu hugtök sem lúta að réttindum og skyldum þjóðfélagsþegna - þekki almennar reglur sem varða samninga, umboð og aðra löggerninga - þekki til laga um lausafjárkaup og fasteignakaup - þekki helstu lög og reglur er varða kröfur og skuldbindingar - þekki helstu lög um skaðabætur og vátryggingar - þekki þann mun sem er á hinum ýmsu rekstrarformum í atvinnurekstri hvað snertir ábyrgð eigenda og fleira - hafi kynnt sér lög um verðlag, samkeppnishömlur og óréttmæta viðskiptahætti - hafi kynnt sér ýmsar aðrar réttarreglur atvinnulífsins, svo sem bókhaldsskyldu, auðkennarétt og fleira - þekki helstu réttindi og skyldur aðila á vinnumarkaði - þekki helstu lög um stéttarfélög og vinnudeilur – þekki til helstu laga varðandi sifja- og erfðarétt, um stofnun og slit hjúskapar, óvígða sambúð og staðfesta samvist. Barnarétt m.a. feðrun barna og móðerni.

Efnisatriði

Grundvallaratriði réttarkerfisins, samningagerð, kröfuréttarsambönd, rekstrarform fyrirtækja, fasteignakaup, lausafjárkaup réttarreglur viðskiptalífsins, bókhaldsskylda, skattskylda, stéttarfélög, vinnudeilur, réttindi og skyldur aðila á vinnumarkaði, vátryggingar og skaðabætur, gjaldþrotaskipti, greiðslustöðvun, nauðasamningar, fasteignakaup og sala, sifja- og erfðaréttur.

Kennslugögn

Lögfræði fyrir viðskiptalífið, eftir Björn Jón Bragason útgefin haust 2024, ekki hægt að nota eldri útgáfur. Seld hjá kennara.

Námsmat:

Símat:

Hlutapróf 60%

Vekefni, mæting og ástundun 40%