LYFJ2TL02 - Lyfjafræði á tanntæknabraut

Undanfari : RAUN1LE05
Í boði : Haust
Flokkur : Fjarnám

Lýsing

Í áfanganum er farið í lyfjaskrár, ATC-flokkun lyfja, frásogsstaði lyfja, ýmsar skilgreiningar sem tengjast lyfjum, mismunandi lyfjaform og hlutverk þeirra. Farið er í umbúðir lyfja, geymslu þeirra og skömmtun. Að lokum er farið í lyf sem notuð eru á tannlæknastofum, s.s. verkjalyf, sýklalyf, róandi lyf, staðdeyfilyf, munnskol og sótthreinisiefni.

Kennslugögn: Allt kennsluefni, m.a. kennsluhefti, er inni í Moodle.

Námsmat: Áfanginn er símatsáfangi og í honum er ekkert lokapróf. Nemendur taka tvö próf inni í Moodle (gagnapróf) og skila 4 skilaverkefnum.