MASK2SV03 - Starfs- og vinnustaðakynning- nýsköpunar- og listabrautar

Undanfari : Allir áfangar á 1. og 2. Þrepi á nýsköpunar- og listabraut
Í boði : Haust
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Markviss starfs- og vinnustaðakynning

Í áfanganum fara nemendur í heimsóknir í fyrirtæki sem tengjast starfssviði náms þeirra og er markmiðið að þeir geri sér grein fyrir starfsumhverfinu og möguleikum til starfa og framhaldsnáms. Áfanginn er einnig kynning á aðilum atvinnulífsins og réttindum og skyldum á vinnumarkaði. Vinna nemenda er fólgin í vettvangsheimsóknum, viðtölum og upplýsingaleit á netinu, ritun skýrslna og greinargerða, gerð starfsumsókna og ferilsskrár.

Undanfari: allir áfangar á 1. og 2. Þrepi á nýsköpunar- og listabraut