NÁTL2NN05 - Náttúrulyf

Undanfari : NÆRI2NN05
Í boði : Vorönn 2026
Flokkur : Fjarnám

Lýsing

Fjallað er um framleiðslu og notkun náttúruefna í lyfjafræði. Óhefðbundnar lækningar, íslenskar lækningajurtir, munur á lyfjum, náttúrulyfjum og náttúruvörum er skoðað ásamt kostum og göllum við notkun þeirra. Farið er yfir droga í evrópskri lyfjaskrá, plöntuhluta, afurðir unnar úr plöntum og dýrum og notagildi droga.

Kennslugögn: Allt námsefnið er inni í Moodle.

Námsmat: Lokapróf með lágmarkseinkunn 4.5

Skilaverkefni 30% og lokapróf 70%.