RAFÍ2FA03 - Rafíþróttir fyrir alla

Í boði : Haust
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Nemendur spila rafíþróttaleiki yfir önnina og æfa sig í völdum leikjum sem einstaklingar og sem liðsheild. Áfanginn er bæði verklegur og bóklegur. Fjallað er almennt um rafíþróttir og leiki sem eru vinsælir í íþróttagreininni. Leikir eru spilaðir í tíma og nemendur vinna nokkur verkefni yfir önnina. Athugið að leikjaval getur breyst á milli anna.