SÁLF2UM05 - Uppeldis- og menntunarfræði

Undanfari : Æskilegt er að nemendur hafi tekið áfangann SÁLF2AA05 en ekki skylda
Í boði : Vor
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Áfanginn hentar til dæmis þeim sem hafa hug á því að fara í kennaranám eða vinna við umönnun barna að einhverju leyti. Í áfanganum kynnast nemendur sögu uppeldisfræðinnar og helstu fræðimönnum í gegnum tíðina og hvernig uppeldisfræðin hefur nýst í uppeldi og menntun. Nemendur kynnast mismunandi kenningum um þroskaferil barna og áhrifaþáttum á sjálfsmynd þeirra. Fjallað verður um uppbyggilegar samskiptaaðferðir við börn eins og ég-boð og virka hlustun.