SKRÁ2TT05 - Skráning og spjaldskrárgerð, tanntæknar á tannlæknastofum

Undanfari : HBFR1HH05 og NÆRI2NN05. Áfanginn er tekin samhliða TAMS3TT05
Í boði : Vor
Flokkur : Fjarnám

Lýsing

Í áfanganum er fjallað um sjúkraskrár sem færðar eru á tannlæknastofum, gerð ýmissa áætlana, fagheiti og skammstafanir. Nemendur þjálfast í notkun gjaldskrár, skráningu í tannkort og vinnu við sértæk tölvuforrit.

Kennslugögn: Bækur sem gefnar eru út af Erhvervsskolernes Forlag og heita Tandklinikassistent, Hoverdforløb, Grundforløb o.fl., þær fást í gegnum netið á slóðinni www.ef.dk þess ber að geta að þessar bækur eru einnig notaðar í verknámi. Þetta eru mjög góðar og mikilvægar bækur sem nýtast í öllu námi á tanntæknabraut. Efni frá kennara og ítarefni af veraldarvefnum. Námsefni frá kennara er aðgengilegt í námsumhverfi áfangans á INNU.

Námsmat: verkefni og próf 40%, lokapróf í tveim hlutum 60% þarf að ljúka þeim með lágmarki 5 í einkunn.