TÖHÖ2LH05 - Leikjahönnun

Í boði : Haust, Sumar
Flokkur : Fjarnám

Lýsing

Farið er yfir valin grunnatriði sem snúa að leikjahönnun. Nemendur læra að nota myndvinnsluforrit (GIMP) og hvernig það kemur að gagni við gerð tölvuleikja. Einnig er kennt á leikjavél (Clickteam Fusion 2.5) sem nemendur nota til að búa til einfalda tölvuleiki og prótótýpur. Í lok annar er val um að skila inn lokaverkefni eða mæta í lokapróf.

Námsgögn:

GIMP

Clickteam Fusion 2.5

Kennslugögn frá kennara

Námsmat:

60% verkefnavinna og 40% lokaverkefni eða lokapróf