UMRÁ2UR03 - Umhverfisráð

Í boði : Alltaf
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Umhverfisráð skipuleggur aðgerðir að eigin vali til að bæta umhverfismál skólans.

Umhverfisráð nemenda setur fram hugmyndir og vinnur að úrbótum í umhverfismálum skólans. Ráðið velur sjálft hverjar áherslurnar í starfinu eru en geta meðal annars skipulagt umhverfistengda viðburði í skólanum, búið til fræðslu á plakötum/vef/samfélagsmiðlum skólans, unnið í samstarfi við önnur umhverfisráð skóla og margt fleira. Umhverfisráð setur sér markmið og hefur áhrif á það hvað skólinn gerir í Grænfánaverkefninu að hverju sinni.

Ráðið vinnur sjálfstætt en þó undir stjórn umhverfisfulltrúa.

Hver nemandi velur sér verkefni til að sinna auk þess að taka þátt í sameiginlegum verkefnum allra.

Nemendur vinna stundum að verkefnunum utan stundatöflu en fá einingar í samræmi fyrir tíma sem fer í þau verkefni.

 

Við munum finna tíma til að hittast nokkrum sinnum yfir önnina og ákveða hvað við viljum gera í sameiningu. Ráðið er því ekki í hefðbundinni stundatöflu.

Námsmat

Ástundun og virkni

Nemendur fá einingafjölda í samræmi við þann tíma sem þeir leggja í ráðið.

Fyrir hverjar 18-20 klst. unnar í þágu umhverfismála fæst ein eining, hámark fimm einingar.