UPPÆ1SR05 - Upplýsingalæsi á tölvur og sjúkraskrá

Undanfari : Almennt tölvulæsi
Í boði : Haust, Vor
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Í áfanganum er meðal annars fjallað um skráningu, meðferð, þagnarskyldu og varðveislu persónuupplýsinga í rafrænni sjúkraskrá. Gagnagrunnar fyrir heilbrigðisvísindi skoðaðir ásamt umfjöllun um uppsetningu ritgerða, áreiðanleika heimilda og APA tilvísunarkerfi.