Hátíðleg útskrift í dag

Í dag var hátíðlegur dagur í FÁ þegar skólinn útskrifaði 94 nemendur og þar af 14 af tveimur brautum. 

Stúdentar af bóknámsbrautum eru 39. Frá nýsköpunar- og listabraut útskrifuðust 6 nemendur.

Af heilbrigðissviði útskrifuðust 36 nemendur; einn sem heilbrigðisritari, tveir sem lyfjatæknar, tveir sem læknaritarar, 8 sem heilsunuddarar, 15 sem sjúkraliðar og loks 9 sem tanntæknar.

Einnig útskrifuðust í dag 8 frábærir nemendur af sérnámsbraut.

Dúx skólans er Símon Tómasson sem útskrifaðist af náttúrufræðibraut með meðaleinkunnina 8.71. Íris Björk Árnadóttir sem útskrifaðist af sjúkraliðabraut Heilbrigðisskóla FÁ hlaut viðurkenningu fyrir frábæran árangur í sérgreinum sjúkraliðabrautar með 9.7 í lokaeinkunn.

Magnús Ingvason skólameistari og Kristrún Birgisdóttir aðstoðarskólameistari fluttu ávörp og fóru yfir liðna önn.

Inga Birna Benediktsdóttir flutti kveðjuávarp fyrir hönd útskriftanema og Íris Björk Árnadóttir flutti kveðjuávarp fyrir hönd útskriftarnema Heilbrigðisskólans.

Elvar Jónsson, aðstoðarskólameistari FB flutti ávarp fyrir hönd 25 ára stúdenta.

Tveir farsælir starfsmenn skólans til margra ára voru kvaddir en það eru þær Steinunn H. Hafstað, fjarnámsstjóri og Ágústa Harðardóttir, dönskukennari.

Tónlistarflutningur við athöfnina var í höndum Önnu Zhu Ragnarsdóttur, nemanda við FÁ en hún flutti lagið Nocturne op.9 No. 2 eftir Chopin. 

Lauk síðan athöfninni með hátíðlegum samsöng allra viðstaddra á laginu Vikivaki við undirleik Önnu Zhu.Við óskum útskriftarnemum til hamingju með áfangann og óskum þeim bjartrar framtíðar.

Fleiri myndir má sjá á facebook síðu skólans hér .