OPIÐ HÚS - fimmtudaginn 21.mars

FÁ hefur alltaf verið opinn öllum sem þangað vilja sækja en fimmtudaginn 21. mars verður OPIÐ HÚS fyrir alla, konur og kalla, frá 16:30 til 18:00 þar sem allar deildir skólans kynna starfsemi sína. Það er meira í boði en margan grunar, á OPNU HÚSI má kynna sér aðstöðuna í glæsilegu skólahúsinu, læra um kosti fjarnámsins og fá nasasjón af fjörlegu félagslífi nemenda. Vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta og kynnast hinu góða starfi sem unnið er í FÁ