GÆÖR2RE05 - Gæði, öryggi og rekjanleiki

Undanfari : Almennar heilbrigðisgreinar
Í boði : Haust
Flokkur : Fjarnám

Lýsing

Í áfanganum er fjallað um hugmynda- og aðferðafræði altækrar gæðastjórnunar (TQM) og straumlínustjórnun (lean management). Uppbygging gæðakerfa fyrirtækja og aðferðir við úrvinnslu frávika til að bæta árangur eru skoðuð. Innsýn í PDCA gæðahringrás. Ásamt skjalfestingu gæðakerfis, gæðahandbók, innihaldi hennar og tilgangi.

Kennslugögn: Bókin: Gæðastjórnun – samræmi, samhljómur og skipulag eftir Helga Þór Ingason. Efni frá kennara og ítarefni af veraldarvefnum. Námsefni frá kennara er aðgengilegt í námsumhverfi áfangans á Moodle.

Námsmat: verkefni 50%, lokapróf 50%.