Nýnemaball FÁ verður haldið í samvinnu við nemendafélög Fjölbrautaskólans í Breiðholti og Tækniskólans. Ballið verður á Spot í Kópavogi fimmtudaginn 14. október.
Húsið opnar kl. 21:00 og lokar kl. 22:00 (ekki er hleypt inn eftir þann tíma) og lýkur ballinu á miðnætti.
Fram koma:
DJ Dóra Júlía
Sprite Zero Klan
Jói P og Króli
Miðasala er hafin og kostar miðinn 3500 kr. Miðasala fer fram hér: https://yess.is/e/nft/nynemaballtskolafbfa/
Miðasalan er eingöngu fyrir nemendur FÁ, FB og Tækniskólann og fer hún fram í gegnum rafræna miðasölu NFFÁ.
Við munum bjóða upp á rútu sem fer frá FÁ kl. 20.40 á Spot og aftur í FÁ eftir ballið kl. 12.00. Skráning verður í rútuna í næstu viku.
Nemendafélag FÁ (NFFÁ) stendur fyrir edrúpotti, þar sem öllum sem koma á ballið verður boðið að blása í áfengismæli til þess að komast í pottinn. Eftir vetrarleyfi verða svo tveir heppnir nemendur dregnir út og fá hvor um sig 25.000 kr. inneign í Kringluna.
Rétt eins og á öðrum viðburðum NFFÁ er öll meðferð áfengis og annarra vímugjafa óheimil. Einnig er vert að nefna að á ballinu er ekki leyfilegt að koma inn með tóbak (sígarettur, neftóbak eða munntóbak), nikótínpúða eða rafrettur. Allur óheimill varningur verður gerður upptækur og honum fargað.
Allir sem koma á ballið þurfa að framvísa miðanum við hurðina ásamt niðurstöðum úr neikvæðu hraðprófi vegna COVID-19 frá Heilsugæslu (sjálfspróf duga ekki). Hraðprófið má ekki vera eldra en 48 klst gamalt.
https://www.testcovid.is/
https://www.heilsugaeslan.is/.../Hradprof-vegna.../