FÆBÓ2FH05 - Fæðubótarefni og heilsuvörur

Í áfanganum verður farið í skilgreiningu á fæðubótarefnum ásamt helstu reglugerðum sem um þau gilda. Farið verður í helstu fæðubótarefni á markaðnum, virk innihaldsefni, notkun, meinta virkni og aukaverkanir ef einhverjar eru. Þá verður kennt hvernig leita á áreiðanlegra upplýsinga á netinu. Skoðuð verða efni sem eiga að auka árangur í íþróttum, bæði lögleg og ólögleg. Þá verður farið í orkudrykki, markfæði og milliverkanir við lyf.

Kennslugögn: allt námsefni er á moodle

Námsmat: 60% verkefnavinna á önninni og 40% lokapróf (heimapróf með öll gögn)