ÍÞRÓ1HJ01 - Hjólað eða gengið í skólann

Nemendur hjóla eða ganga í skólann. Þeir stofna aðgang í smáforritinu Strava og skrá svo allar sínar ferðir í og úr skóla í Strava appinu. Kennari getur þannig fylgst með ferðum nemandans. Nemendur fá kynningarbréf í upphafi annar. Áfanginn er metinn til íþróttaeininga í kjarna.