SÁLF2AA05 - Inngangur að sálfræði

Í fyrsta lagi fjallað um helstu stefnur sálfræðinnar og helstu starfssvið sálfræðinga. Í öðru lagi er fjallað um námssálarfræði eins og virka skilyrðingu og viðbragðsskilyrðingu. Í þriðja lagi fjallað um hugrænar kenningar um æðra nám eins og sýndarnám og innsæisnám og einnig fjallað nokkuð ítarlega um minnið. Í því sambandi fjallað um minnistækniaðferðir og námstækni. Í fjórða lagi fjallað um helstu rannsóknaraðferðir sálfræðinnar og nemendur kynnast vísindalegri hugsun og vinnubrögðum með því að framkvæma einfalda tilraun og túlka niðurstöður

Kennslugögn: Inngangur að sálfræði eftir Kristján Guðmundsson og Lilju Ósk Úlfarsdóttur. JPV útgáfa 2008

Námsmat: Moodle krossapróf, rannsóknarverkefni og lokapróf 65%