SÁLF2FÖ05 - Sálfræði - fötlun, öldrun og áföll

Nemandi viti hvað flokkast sem fötlun og þekki helstu einkenni, orsakir, tíðni og úrræði/meðferð og fái auk þess innsýn í aðstæður fatlaðra á Íslandi. Nemandi fái þjálfun í upplýsingaöflun sem varðar fatlaða og fái auk þess þjálfun í því að setja fram upplýsingar skipulega í samvinnu við aðra. Nemandi geri sér grein fyrir helstu áhrifum öldrunar á hugsun og líkama. Nemandi viti hvað átt er við með hugtökunum líffræðilegur, sálrænn og félagslegur aldur. Nemandi fái innsýn í aðstæður og lífsviðhorf aldraðra með viðtali við aldraðan einstakling. Nemandi viti hvað felst í hugtökunum áfallastreita, áfallastreituröskun PTSD) og áfallahjálp.

Kennslugögn: Lesefnið er af vefsíðum sem tenglar eru inn á í Moodle. Það er því ekki þörf á að kaupa lesefni.

Námsmat: Krossapróf á moodle, verkefni og lokapróf 50%