SKRÁ2TT05 - Skráning og spjaldskrárgerð, tanntæknar á tannlæknastofum

Í áfanganum er fjallað um sjúkraskrár sem færðar eru á tannlæknastofum, gerð ýmissa áætlana, fagheiti og skammstafanir. Nemendur þjálfast í notkun gjaldskrár, skráningu í tannkort og vinnu við sértæk tölvuforrit.