SPÆN1AU05 - Spænska 3

Viðfangsefni undanfaranna eru rifjuð upp. Orðaforðinn er aukinn og ný málfræðiatriði þjálfuð. Nemendur ná leikni í að segja frá í þátíð. Þeir lesa létta bókmennta- og nytjatexta. Áfram er unnið að aukinni færni nemenda í lesskilningi, tali, hlustun og ritun, þar sem fléttað er inn í kennsluna menningu spænskumælandi landa.

KENNSLUGÖGN

¡Hola! ¿Qué tal? 3 (Bókin er eingöngu seld hjá kennara í fyrstu kennsluviku annarinnar).

Skáldsaga (Upplýsingar hjá kennara)

Góð orðabók.

Ítarefni frá kennara, hlustunarefni og gagnvirkar æfingar verða aðgengilegar í Moodle.

NÁMSMAT

Próf og verkefni á önn 40%. Lokapróf 60%.