STÆR2HV05 - Hornaföll, vigrar og talningarfræði

Annar stærðfræðiáfangi á Náttúrufræðibraut og Viðskipta-og Hagfræðibraut.

Efnisatriði: Talningafræði, vigrareikningur, hornafræði, gröf hornafalla, þríhyrningar og hringir.

Kennslugögn: Stærðfræði 3A.Vigrar, hornaföll, þríhyrningar, hringir, ákveður, stikun. IÐNÚ 2023. Höfundar: Gísli Bachman og Helga Björnsdóttir.
Aukaefni frá kennara.

Námsmat: Lokapróf með lágmarkseinkunn 4,5
Einkunnir fyrir gagnvirkar æfingar eru ekki reiknaðar inn í lokaeinkunn nema nemandinn hafi staðist lokapróf og gilda þá einungis til hækkunar á lokaeinkunn. Gagnvirkar æfingar gilda þá 30% og lokaprófið 70%
Að öðrum kosti gildir lokaprófið 100%