SVNU3SN05 - Svæðanudd

Verklegur áfangi á heilsunuddbraut.

Kennd er hefðbundin svæðameðferð sem er í raun fótanudd sem byggir á þeirri kenningu að það sé hægt að hafa áhrif á heilsu fólks í gegnum fætur.

Nemendum er kennt að finna og þekkja svæði á fótum og vinna á þeim sé þess þörf eftir ákveðinni rútínu.