ÞTÆK1KY01 - Þjónustutæknir – kynning á starfi

Áfanginn byggir á heimsókn á heilbrigðisstofnun þar sem fylgst er með störfum þjónustutækna eða reyndra starfsmanna. Skipulag starfsemi og dæmigerður dagur er kynntur ásamt því að lögð er áhersla á að nemandi fái innsýn í sem flesta hluta starfsins.

Í boði: eftir þörfum nemenda á þjónustutæknabraut í samvinnu við skóla og vinnustað.