VAPÓ3LT24 - Starfsnám í apóteki og sjúkrahúsapóteki

Um er að ræða fjórtán vikna starfsnám (36 tímar á viku), sjö vikur í apóteki og sjö vikur í sjúkrahúsapóteki í umsjón kennslustjóra/kennara og leiðbeinanda á vinnustað. Nemendur skulu kynnast öllum störfum lyfjatækna á staðnum og vinna þverfaglegt verkefni/feribók samhliða sem tengist bæði starfsnámi og sérnámi lyfjatækna. Ferilbók er skilað til skóla.

Í boði: eftir þörfum nemenda í samráði við skóla og vinnustaði.